Ekki hef ég afrekað margt í dag, en sennilega meira en margir aðrir t.d:
- Fara í vinnuna kl. hálf 9.
- Gera ekki rassgat til kl. hálf 11 því þá fengum við að fara heim. (veit ekki af hverju).
- Fara í sturtu.
- Keyra niður á Borgarfjörð á ógeðslegum vegi með hund í skottinu.
- Gera ekki raaaaaassgat heima nema sóla mig og horfa á hundinn.
- Reyndar sofnaði ég í yndislega sófanum inn í stofu í einhverja 2 tíma.
- Gleymdi þess vegna að hjálpa pabba við eitthvað dæmi.
- Keyra næstum því á krumma kallinn.
- Syngja yfir mig í bílnum (frábært að keyra svona ein).
- Vera mjög þreytt.
- Taka bensín fyrir 2000 kr en fékk eina krónu í bónus.
- Leiðast óhemju.
- Reyna að ná í alla til að leika við mig, allir uppteknir eða ljótir.
- Vera 4ra barna(dýra) einstæð móðir.
- Þjást af svengd.
- Þjást af “ég nenni ekki að gera neitt í dag” sjúkdómnum.
- Hugsa óeðlilega mikið.
- Vera smá brunnin eftir ljósatíma.
- Þjást af hugsuninni “Bara 3 vikur eftir af vinnunni”.
- Engjast um af gleði við hugsunina “omægod, ég fæ 144.000 útborgað eftir að hafa unnið 10 daga” og það heldur mér vakandi í vinnunni.
- HRÓARSKELDA EFTIR BARA SUMA DAGA!!! VÚHÚ!!!
Ótrúlega margt að gerast í lífi mínu semsagt.
Róóleg að fá vel borgað þarna! Ég fæ kannski 100 ef ég sel úr mér nýrun (Höfum við ekki tvö nýru pottþétt?) og vinn mikið..held ég..
Til hamingju med krónuna sem tú graeddir, hlýtur ad afa verid GEGGJAD!
ég er bruninn:(
en má ég koma með þér til borgarfjarðar einhverntíman?
verður það gaman?