rúna kúl

fjarstæðukenndur hugarheimur

góður sumardagur maí 29, 2007

Filed under: Uncategorized — eyrunhrefna @ 6:02 pm

Það er svo gaman að vera til á dögum eins og þessum. Allt leikur í lyndi og allt gengur sinn vanagang. Ég mæti í vinnuna kl 9 og byrja að planta, brenn, fer heim og dey úr hita, gamall kall labbar rúnt á nesinu, fólk að fá sér ís fyrir utan Ísmynd, grillfílingurinn allsráðandi. Flugvélin tekur á loft áfallalaust upp í heiðan himinn, öskur úr krökkunum í nærheden virka ekki alveg jafn pirrandi, bassatakturinn í einhverjum bíl sem er kyrrstæður nálægt húsinu mínu er þó ekki jákvæður á þessum lista, né maðurinn sem spilar hann), hljóðið í sláttuvélinni hjá Þodda, heitur gustur inn um gluggann og Beverly hills í sjónvarpinu. Hvað er betra?

Ég veit að ég ætti ekki að vera inni núna, en ég er bara búin að vinna úti í allan dag – ég hef ástæðu.

ere.jpgBætt við kl. 21.31: Ok, ég er alveg að verða að kolamola. Ég get ekki legið, get ekki bylt mér og get ekki verið kyrr þannig að þetta er allt ekki góð samblanda. Og enginn Pétur til að hjúkra mér.

Eftir sumarið verð ég sennilega orðin jafn brún og áður en ég fórimg_2104.jpg í sturtu eftir brúnkudæmið. Það var svaaaaakalegt. Leit út eins og margt á þeim 12 tímum, t.d. gömul, hrukkótt kona sem var búin að ofnota ljósabekki, misheppnuð vaxtarræktarkona með ALLTOF mikla brúnku, fáviti sem sofnaði á sólarströnd og með munsturfar eftir brókina, ungfrú ísland og almennt bara geggjuð gella. P.s. þessar myndir eru teknar í þvíástandi þ.e. brúnkuástandinu!

 

6 Responses to “góður sumardagur”

  1. Heiðdís Fjóla segir:

    i is a lovely day=)
    elskesa síðu hún er sæt

  2. kakalinn segir:

    Wow roleg a ad vera kolamoli. Ekkert nema feit rigning herna, hvernig vaeri ad senda sma af thessum sumar sykri til englands?

  3. Steinunn segir:

    hmm… hvar ert þú að vinna eiginlega??

  4. Silla segir:

    Floooott Eyrún… þú ert snilli!

    Pabbi minn er í útvarpinu akkúrat núna á rás 2 að syngja lag eftir Badda…. í sjómannalagskeppninni… það er pínu skondið sko!

  5. Ásta Hlín segir:

    Gód sída, laus vid stafsetningarkóda ad ollu leiti, mjog gott.

    Eyrún datt í kolakassa, haefaddírífaddí rúllannrae. Ef hún mamma vissi tad tá yrdi hún alveg steinhissa…..ekki?

  6. Elsa Arney segir:

    Ekki frá því að ég hafi fengið smá heimþrá að sjá í hornið á mömmu og pabba rúmi! ;(


Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

 
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.