rúna kúl

fjarstæðukenndur hugarheimur

höfn er skítapleis, samt fallegt maí 28, 2007

Filed under: Uncategorized — eyrunhrefna @ 11:02 pm

picture-100.jpg4ra daga helgi lokið, hefði þó mátt vera aðeins lengri. Helgin einkenndist af fermingu og mat.

picture-033.jpgÉg og Pétur lögðum upp í reisu til Hornafjarðar til að fara í fermingu, sem við fórum svo ekki í heldur vorum meira spennt fyrir kökunum og matnum í veislunni. Það er afskaplega skemmtilegt að keyra í 2 1/2 tíma til að fara í fermingu til stráks sem maður hefur aldrei séð á ævinni. En það er kannski kominn tími til að hitta þetta skyldfólk Péturs, sennilega betra seint en aldrei. Þar sem ég hafði aldrei komið innfyrir bæjarmörk Hafnar var þetta algjörlega ný lífsreynsla. Það eru meira að segja 2 pizzustaðir þar og fullt af nammi.  Við fórum í útsýnisferð inn í Lón þar sem Einar Ari fór á kostum (sjá picture-043.jpgmynd) og var næstum því dottinn út í vatnið svona 3x og henda steinum í annað fólk svona 5x.  Það var frábært.  Í þessari ferð voru engar myndir teknar af mér þar sem ég með með forsjá yfir 2 myndavélum og einu 4 ára barni þar sem flestir hini sem voru með í för virtust ekki hafa þroskast um ár síðan 1994.  Skuggamyndirnar voru alveg að gera gott eins og sést.  Grétar, Pétur, ég og Matthildur.  Eitthvað agalega lítið var gert þessa helgi nema djamma og djúsa (djók). Höfn er ákaflega dauflegur bær miðað við íbúana þegar þeir koma í Héraðið. 

Það er held ég ekki laust við það að þessi fjölskylda hafi bara fríkkað um heilan helling síðan ég bættist við.  Ég og Örn fengum meira að segja að vera með á mynd :) Wooohoo. 

Ég er glötuð í kvöld og ætla í sturtu……áður en ég byrja að svitna á fullu í vinnunni á morgun.  Er að spá í að hætta bara almennt að fara í sturtu, tekur sig varla. Samþykkt!!

Vúhú, ég og Anna Berglind að fara til Búlgaríu næsta sumar!!! jéjéjéjéjéjé!!

 

6 Responses to “höfn er skítapleis, samt fallegt”

  1. eyrún hrefna segir:

    vúhú, mana fólk að kommenta :)

  2. Anna Berglind segir:

    Hahahaha…við klárlega á leiðinni til Búlgaríu !…þú verður að sannfæra fólkið á Laugardaginn, þar sem sumum er víst ekki boðið !!

  3. kakalinn segir:

    Whoo! til hamingju med nyja bloggid, megi thad blomstra likt og handakrikar i frakklandi.

  4. eyrunhrefna segir:

    heeeey, hvernig væri að kommenta?

  5. alfa segir:


    Skemmtilegt blogg – þú ert fyndin (-:
    Bestu kveðjur
    alfa

  6. do you know any information about this in english?


Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

 
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.