rúna kúl

fjarstæðukenndur hugarheimur

óneiónei júní 12, 2007

Filed under: Uncategorized — eyrunhrefna @ 9:03 pm

Vá, algjör lúði maður.

Ég ætla að halda áfram á www.eyrunhrefna.bloggar.is  – ég er ekki að fíla þetta.  Kann ekkert á þetta :/

Bless, Eyrún

 

Byrjaðu í dag að elska. júní 7, 2007

Filed under: Uncategorized — eyrunhrefna @ 12:15 am

Ekki hef ég afrekað margt í dag, en sennilega meira en margir aðrir t.d:

  • Fara í vinnuna kl. hálf 9.
  • Gera ekki rassgat til kl. hálf 11 því þá fengum við að fara heim.  (veit ekki af hverju).
  • Fara í sturtu.
  • Keyra niður á Borgarfjörð á ógeðslegum vegi með hund í skottinu.
  • Gera ekki raaaaaassgat heima nema sóla mig og horfa á hundinn.
  • Reyndar sofnaði ég í yndislega sófanum inn í stofu í einhverja 2 tíma.
  • Gleymdi þess vegna að hjálpa pabba við eitthvað dæmi.
  • Keyra næstum því á krumma kallinn.
  • Syngja yfir mig í bílnum (frábært að keyra svona ein).
  • Vera mjög þreytt.
  • Taka bensín fyrir 2000 kr en fékk eina krónu í bónus.
  • Leiðast óhemju.
  • Reyna að ná í alla til að leika við mig, allir uppteknir eða ljótir.
  • Vera 4ra barna(dýra) einstæð móðir.
  • Þjást af svengd.
  • Þjást af “ég nenni ekki að gera neitt í dag” sjúkdómnum.
  • Hugsa óeðlilega mikið.
  • Vera smá brunnin eftir ljósatíma.
  • Þjást af hugsuninni “Bara 3 vikur eftir af vinnunni”.
  • Engjast um af gleði við hugsunina “omægod, ég fæ 144.000 útborgað eftir að hafa unnið 10 daga” og það heldur mér vakandi í vinnunni.
  • HRÓARSKELDA EFTIR BARA SUMA DAGA!!! VÚHÚ!!!

Ótrúlega margt að gerast í lífi mínu semsagt.

 

Könguló, könguló. júní 5, 2007

Filed under: Uncategorized — eyrunhrefna @ 9:07 pm

Óvinir mínir, köngulærnar, eru farnar að sækja að og hreiðra um sig í ýmsum hornum og kimum.  Ég hef lent í ýmsu varðandi köngulær m.a. verið í sturtu og opnað augun eftir gott andlitsskol og áttað mig á að beint fyrir framan andlitið á mér er hangandi könguló í eigin vef.  Það var óvæntur glaðningur.  Yfirleitt áður en ég fer í sturtu kanna ég alla sturtuna vel og vandlega hvort að það sé eitthvað óvænt þar en í dag gerði ég það ekki, af einhverjum ástæðum.  Þegar ég kom úr sturtu og leit eitthvað upp í glugga, hafði þá ekki bara verið þessi líka ágæta hlussukönguló beint fyrir ofan hausinn á mér á meðan ég var í sturtu.  Og bara þessi hugsun að hún hefði hugsanlega geti dottið á mig og bitið úr mér allt líf skelfir mig hryllilega og lætur mig sennilega fá martröð í nótt.

Það er líka ógeðslega leiðinlegt að vera ein heima.  Hvað á maður að gera þegar maður er einn heima?  Bara leiðinleg sjónvarpsdagskrá í gangi og ég er búin að skoða allt í tölvunni.  Maður neyðist kannski bara til að horfa á Innlit/Útlit.  (vá, ég festist alveg í svona 10 mín yfir nýja húsinu sem Nadia var að innrétta).

 

maí 31, 2007

Filed under: Uncategorized — eyrunhrefna @ 8:12 pm

Í vinnunni gefst mikill tími til þess að hugsa, um allt og ekkert.  Það er ekkert lítið sem rennur í gegnum huga mér á þessum 8 tímum þar sem ég stend útí móa.  Eitt af því sem mér datt í hug var í flokknum “ekkert” og var setningarnar “það efast ég um” og “það efast ég ekki um”.  Alls ekki í frásögur færandi þar sem allt heilvita fólk veit hvað þetta þýðir.  En einu sinni var ég lítil stúlka og svo sannarlega forvitin um gang lífsins og æxlunarfæri dýra – það kemur svosem ekki málinu við á neinn hátt.  En ég lagði svakalega mikið á mig til að muna  hvað þýddi hvað af þessum 2 setningum. Ég man meira að segja hvar þetta hugarstríðsástand átti sér stað og það var á sundnámsskeiði í Alþýðuskólanum á Eiðum en þar heyrði ég þetta meðal “stórru” stelpnanna og lá allt kvöldið að æfa mig til að ég gæti sagt þetta í réttum tilgangi. Ég bara gat ekki munað hvenær maður átti að segja hvað.  Með einhverjum ráðum náði ég að snúa hugsun minni, þannig að þegar mér fannst ég eiga að nota t.d. setninguna “ég efast um það” þá átti ég í raun að nota “ég efast ekki um það”.  Rosalega er erfitt að skýra þetta í svona bloggfærslu.  Ég vona að jafnokar mínir þarna úti skilji mig.  Ég veit samt í dag hvor setningin þýðir hvað, þannig að þetta er allt í lagi.

Talandi um Eiðar að þá fékk ég alveg svakalegt nostalgíukast þar um daginn þegar ég sótti Pétur þangað.  Ég sá sjálfa mig 9 ára valhoppa yfir úr skólanum og inn í sundlaug, freknótta og með stutt hár.  Ég horfði á mig vera brjálæðislega stolta af bróður mínum sem var í Alþýðuskólanum á þeim tíma og nýtti því allar stundir að tala við hann, og hafði algjöra unun af því þegar hann kynnti mig fyrir vinum sínum.   Ég skrifaði meira að segja í dagbókina að ég þekkti fullt af krökkum þar fyrir utan Hafþór t.d. Óla Bjöss og Jón Björgvin.  Talandi um eitthvað meira töff eða?  Svo var líka best þegar Elvar Freyr spurði einn strákinn í skólanum hvað hann héti og ætlaði að skrifa það niður á blað en gat það ekki þannig að viðkunnanlegi drengurinn þurfti að skrifa það fyrir hann.  Fallegt af honum….

Ég er algjör lúði og er bara kominn á þátt 2 í Heroes.  Já, ég er dáldið á eftir þannig að ég held að ég verði að fara að horfa meira.

Adios.

 

góður sumardagur maí 29, 2007

Filed under: Uncategorized — eyrunhrefna @ 6:02 pm

Það er svo gaman að vera til á dögum eins og þessum. Allt leikur í lyndi og allt gengur sinn vanagang. Ég mæti í vinnuna kl 9 og byrja að planta, brenn, fer heim og dey úr hita, gamall kall labbar rúnt á nesinu, fólk að fá sér ís fyrir utan Ísmynd, grillfílingurinn allsráðandi. Flugvélin tekur á loft áfallalaust upp í heiðan himinn, öskur úr krökkunum í nærheden virka ekki alveg jafn pirrandi, bassatakturinn í einhverjum bíl sem er kyrrstæður nálægt húsinu mínu er þó ekki jákvæður á þessum lista, né maðurinn sem spilar hann), hljóðið í sláttuvélinni hjá Þodda, heitur gustur inn um gluggann og Beverly hills í sjónvarpinu. Hvað er betra?

Ég veit að ég ætti ekki að vera inni núna, en ég er bara búin að vinna úti í allan dag – ég hef ástæðu.

ere.jpgBætt við kl. 21.31: Ok, ég er alveg að verða að kolamola. Ég get ekki legið, get ekki bylt mér og get ekki verið kyrr þannig að þetta er allt ekki góð samblanda. Og enginn Pétur til að hjúkra mér.

Eftir sumarið verð ég sennilega orðin jafn brún og áður en ég fórimg_2104.jpg í sturtu eftir brúnkudæmið. Það var svaaaaakalegt. Leit út eins og margt á þeim 12 tímum, t.d. gömul, hrukkótt kona sem var búin að ofnota ljósabekki, misheppnuð vaxtarræktarkona með ALLTOF mikla brúnku, fáviti sem sofnaði á sólarströnd og með munsturfar eftir brókina, ungfrú ísland og almennt bara geggjuð gella. P.s. þessar myndir eru teknar í þvíástandi þ.e. brúnkuástandinu!

 

höfn er skítapleis, samt fallegt maí 28, 2007

Filed under: Uncategorized — eyrunhrefna @ 11:02 pm

picture-100.jpg4ra daga helgi lokið, hefði þó mátt vera aðeins lengri. Helgin einkenndist af fermingu og mat.

picture-033.jpgÉg og Pétur lögðum upp í reisu til Hornafjarðar til að fara í fermingu, sem við fórum svo ekki í heldur vorum meira spennt fyrir kökunum og matnum í veislunni. Það er afskaplega skemmtilegt að keyra í 2 1/2 tíma til að fara í fermingu til stráks sem maður hefur aldrei séð á ævinni. En það er kannski kominn tími til að hitta þetta skyldfólk Péturs, sennilega betra seint en aldrei. Þar sem ég hafði aldrei komið innfyrir bæjarmörk Hafnar var þetta algjörlega ný lífsreynsla. Það eru meira að segja 2 pizzustaðir þar og fullt af nammi.  Við fórum í útsýnisferð inn í Lón þar sem Einar Ari fór á kostum (sjá picture-043.jpgmynd) og var næstum því dottinn út í vatnið svona 3x og henda steinum í annað fólk svona 5x.  Það var frábært.  Í þessari ferð voru engar myndir teknar af mér þar sem ég með með forsjá yfir 2 myndavélum og einu 4 ára barni þar sem flestir hini sem voru með í för virtust ekki hafa þroskast um ár síðan 1994.  Skuggamyndirnar voru alveg að gera gott eins og sést.  Grétar, Pétur, ég og Matthildur.  Eitthvað agalega lítið var gert þessa helgi nema djamma og djúsa (djók). Höfn er ákaflega dauflegur bær miðað við íbúana þegar þeir koma í Héraðið. 

Það er held ég ekki laust við það að þessi fjölskylda hafi bara fríkkað um heilan helling síðan ég bættist við.  Ég og Örn fengum meira að segja að vera með á mynd :) Wooohoo. 

Ég er glötuð í kvöld og ætla í sturtu……áður en ég byrja að svitna á fullu í vinnunni á morgun.  Er að spá í að hætta bara almennt að fara í sturtu, tekur sig varla. Samþykkt!!

Vúhú, ég og Anna Berglind að fara til Búlgaríu næsta sumar!!! jéjéjéjéjéjé!!

 

 
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.